Skilmálar og skilyrði
Upplýsingar um félagið:
Golfklúbburinn Klettar
kt. 460411-1060
Heimili Brautarholt 1
162 Reykjavík
Sími 566 6045
email: gbr@gbr.is
Staðfesting
Þegar þú hefur lokið við að bóka í bókunarkerfinu færðu tölvupóst með bókunarnúmeri og kvittun fyrir þjónustukaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.
Þegar þú hefur lokið við kaup á gjafabréfi í gjafabréfakerfinu færðu tölvupóst með númeri gjafabréfs sem hægt er að nota til að bóka keypta þjónustu í bókunarkerfinu. Einnig færðu kvittun fyrir kaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.
Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun
Eftirfarandi kort er hægt að nota í bókunar- gjafabréfakerfi okkar:
Visa
Visa electron
Mastercard
Maestro
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.
Netverð (verð)
Uppgefið verð í bókunar- gjafabréfakerfi okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.
Þjónustan inniheldur virðisaukaskatt. Vinsamlegast athugaðu að verðið i bókunar- gjafabréfakerfinu getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Áskriftir
Þegar áskrift er keypt í áskriftarkerfinu, samþykkir viðkomandi skilmála um að áskriftargjaldið er gjaldfært sjálfvirkt mánaðaralega þangað til áskrift er sagt upp. Hægt er að segja upp áskrift inni á Mínum síðum og tekur uppsögn þá gildi í lok greiðslutímabils. Aðgangur sem áskrift veitir lokast þá í lok greiðslutímabils. Hægt er að virkja áskrift aftur með því að skrá sig inn með notandanafni og kaupa nýja áskrift. Einnig er hægt að segja upp áskrift með því að senda okkur tölvupóst á gbr@gbr.is
Áskrift skiptakort, Hægt er að kaupa kort sem gefur aðgang að því að nota kortið í ákveðin skipti. Við kaup myndast inneign á kortinu sem er hægt að nota þangað til inneign klárast, eftir að er kortið ógilt.
Afbókanir – endurgreiðsla
Við bjóðum upp á endurgreiðslu bókunarkerfinu ef afbókun berst innan 12 tíma áður en bókaður tími byrjar. Afbóka verður með því að smella á vefslóð (URL) sem fylgdi með í staðfestingapósti fyrir bókuninni.
Einnig er hægt að hringja í afgreiðslu okkar og afbóka innan 12 tíma áður en bókaður tími hefst. Síminn í afgreiðslunni er 566 6045
Ef greitt hefur verið með korti í netbókun, er endurgreiðsla framkvæmt sjálfvirkt inná það kort sem notað var við bókun. Ath að endurgreiðsla getur tekið 1-3 daga.
Öryggi vefsvæðis
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.